Fjórar stúlkur úr SA á Norðurlandamótinu sem hófst í dag

Landsliðið á Nordics (mynd: iceskate.is)
Landsliðið á Nordics (mynd: iceskate.is)

Íslenska landsliðið í listskautum er nú statt í Stavanger í Noregi þar sem það tekur þátt í Norðurlandamótinu. Mótið hófst í morgun og eru þær Freydís Jóna Bergsveindóttir og Júlía Rós Viðarsdóttir báðar búnar að skauta stutta prógramið sitt í Advanced Novice flokki sem hófst fyrr í dag og stóðu sig báðar vel. Aldís Kara Bergsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir skauta stutta prógramið sitt í Junior síðar í kvöld. Freydís og Júlía skauta svo frjálsa prógramið á morgun en Aldís og Marta á laugardag í junior flokki. Hér á heimsíðu mótsins er hægt að fylgjast með stöðunni í mótinu og hér er hægt að fylgjast með beinni útsendingu. Við sendum hlýja strauma til Stavanger og óskum stúlkunum okkar góðs gengis.