Fréttir frá JGP - Stutta prógramminu lokið og frjálsa prógrammið framundan

Marta María skautaði stutta prógrammið sitt með miklum sóma í gær. Hún fékk 32.71 stig fyrir prógrammið og skilaði það henni í 27. sæti.

Hún skautar önnur í öðrum upphitunarhóp í dag. Það þýðir að hún fer inn á í upphitun klukkan 15:12 að íslenskum tíma í dag og dansar svo prógrammið sitt klukkan 15:26.

Annars er það að frétta að loknum fyrri keppnisdeginum að Rússneska stúlkan Alexandra Trusova, sigurvegar JGP mótaraðarinnar á síðasta ári og Junior Worlds sigurvegari síðasta tímabils, er efst eftir stutta prógrammið, en hún fékk 74,74 stig fyrir stutta prógrammið. Önnur stendur Kseniia Sinitsyna, einnig frá Rússlandi, með 67.12 stig og þriðja er Anastasiia Arkhipova frá Úkraínu með 62.64 stig. Það verður spennandi að sjá hverju stúlkurnar skila í dag.

Við sendum Mörtu Maríu hlýjar kveðjur og stuðning út í Kosmósið og hlökkum til að fylgjast með henni í dag.