Karfan er tóm.
Þá er fyrri hluta Akureyrar- og bikarmóts 2016 lokið og skemmst frá því að segja að Freyjur tryggðu sér bikarmeistartitilinn. Í leikjum 3. umferðar unnu Freyjur lið Garpa 7-6 og Ice Hunt lögðu Víkinga12-7. Freyjur og Ice Hunt eru þá jöfn að stigum en innbyrðisviðureign raðar Freyjum ofar og því hljóta þær bikarmeistaratitilinn. Að sjálfsögðu er þeim hér með óskað til hamingju.
En mótið heldur áfram. Næstu þrjár umferðir ráða því hvaða lið verður Akureyrarmeistari.
Í kvöld mætast Garpar og Ice Hunt á braut 2 og Víkingar taka á móti Freyjum á braut 4. Leikirnir hefjast kl. 19:00.
Stöðuna og úrslit má sjá hér.