Karfan er tóm.
Listhlaupsstelpurnar úr SA hafa staðið sig vel á Mladost Trophy sem fram fer í Zagreb. Keppni lýkur í dag og þá tekur við
ferðalag til Póllands og æfingabúðir þar.
Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir náði 11. sæti samanlagt í stúlknaflokki (Advanced Novice). Hún var í 16. sæti eftir
stutta prógrammið og í 11. sæti í frjálsa prógramminu, sem gaf henni 11. sætið samanlagt með 71,95 í einkunn. Sara
Júlía Baldvinsdóttir varð í 21. sæti í sama flokki með 55,32 í einkunn.
Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir keppti í stutta prógramminu í junior kvennaflokki í gær og var í 9. sæti með 32,15 í einkunn eftir
það. Hún endaði svo í 11. sæti með 87,48 í einkunn eftir frjálsa prógrammið í dag.
Á úrslitasíðu mótsins má sjá sundurliðun einkunna í öllum flokkum, meðal annars lokaröðina í stúlknaflokki og lokaröðina í junior kvennaflokki.