Haustmót ÍSS

Helgina 7.-9. september fór fram haustmót ÍSS í listdansi í höllinni okkar. LSA átti 8 keppendur á mótinu að þessu sinni.

Keppni í keppnishópunum chicks og cubs var með nýju sniði á þessu móti og var keppendum ekki raðað í sæti, heldur fengu allir verðlaunapening og viðurkenningu.

Í chicks áttum við einn keppanda hana Berglindi Ingu.

Chicks

Í cups áttum við tvo keppendur þær Magdalenu Sulova og Sædísi Hebu

cups

Í Intermediate ladies áttum við tvo keppendur þær Evu Björg og Hugrúnu Önnu. Eva Björg sigraði flokkinn með 26,93 stigum og Hugrún Anna hafnaði í þriðja sæti með 22.49 stig.

Intermediate ladies

Í Basic Novice áttum við einn keppanda hana Freydísi Jónu Jing. Hún gerði sér lítið fyrir og sigraði flokkin með 27.35 stigum.

Basic Novice

Í Advanced Novice áttum við einn keppanda hana Júlíu Rós. Hún hafnaði í 4 sæti með 61.75 stig.

Í Junior áttum við einn keppanda að þessu sinni hana Aldísi Köru. Hún skautaði sig upp í annað sæti seinni daginn með vel skautuðu frjálsu prógrammi og hlaut í allt 87.36 stig.

Junior

Við óskum stelpunum öllum til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með ykkur áfram í vetur