Karfan er tóm.
Úrslitakeppni Íslandsmótsins leikin á föstudag og laugardag.
Um helgina ræðst hvaða lið verður Íslandsmeistari í krullu árið 2009. Fjögur lið leika eina umferð allir við alla og síðan leika tvö efstu liðin úr þeirri keppni hreinan úrslitaleik um titilinn en liðin í þriðja og fjórða sætinu leika um þriðja sætið á Íslandsmótinu. Mammútar eru án efa staðráðnir í að verja titilinn en þeir eru núverandi Íslandsmeistarar. Þeir sigruðu forkeppnina (deildarkeppnina ) með yfirburðum þar sem þeir töpuðu ekki leik og hlutu 14 stig. Garpar komu næstir með 10 stig og Üllevål og Víkingar þar næst með 6 stig. Sigurvegarar á íslandsmótinu vinna sér inn rétt til þátttöku á evrópumóti landsliða í krullu sem fer fram í Aberdeen í Skotlandi 5 - 12 desember næsta vetur. Niðurröðun leikja er eftirfarandi:Föstudagskvöld kl 22:00 | Laugardagskvöld kl. 17:45 | |||
Mammútar | Üllevål | Garpar | Mammútar | |
Garpar | Víkingar | Üllevål | Víkingar | |
Laugardagsmorgun kl 9:30 | Laugardagskvöld kl:20:00 | |||
Mammútar | Garpar | Úrslitaleikir | ||
Üllevål | Víkingar | Úrslit 1 | Úrslit 3 | |
Úrslit 2 | Úrslit 4 |