Karfan er tóm.
Bjarnarmenn mættu með fullskipað lið og það er erfitt að mæta þeim á góðum degi með aðeins tvær línur. Auk þess fór dómari leiksins mikinn á flautunni og því spiluðu Jötnar meira eða minnna einum færri. Þrátt fyrir það voru einhverjar jákvæðar hliðar á leiknum en hann var t.a.m. ágæt æfing í "penalty-kill" og þrátt fyrir fjölmargar brottvísanir fékk liðið aðeins á sig eitt mark við þær aðstæður. Jafnframt voru þrír leikmenn að spila sinn fyrsta leik með Jötnum, en það voru þeir Ólafur Tryggvi Ólafsson, Birgir Örn Sveinsson sem spilaði í vörninni og Sigurður Árnason af Sökkulangs ættbálkinum sem flutti suður í haust. Óli var reyndar að spila sinn fyrsta leik í Íslandsmóti og Biggi sinn fyrsta alvöruleik án þess að vera í marki.
Stutt er í næstu viðueign þessarra liða, en Bjarnarmenn munu sækja Jötna heim næsta þriðjudag.