Júlía Rós í 20. sæti á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar

Júlia Rós og Darja EYOF 2022
Júlia Rós og Darja EYOF 2022

Júlía Rós Viðarsdóttir endaði í 20. sæti á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fer fram í Voukatti, Finnlandi. Júlía Rós fékk samanlagt 115.22 stig sem er hennar besti árangur á alþjóðlegu móti en hún fékk 40.53 stig fyrir stutta prógramið og 74.69 fyrir frjálsa. Við óskum Júlíu og Darju þjálfara til hamingju með þennan árangur og óskum þeim góðrar heimferðar.