Karfan er tóm.
Laugardaginn næsta 25. mars, verður haldið Vinamót í Skautahöllinni hér á Akureyri. Vinamót er mót sem haldið er á ári hverju á vegum Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar og er öllum C keppendum frá SA, SR og Birninum boðið. Að þessu sinni sáu iðkendur SR sér ekki fært að koma en við munum taka vel á móti keppendum Bjarnarins en frá þeim munu koma u.þ.b. 50 keppendur! Dregin verður keppnisröð föstudagskvöldið 24. mars en nánari tímasetning verður gefin upp síðar. Keppni hefst svo klukkan 8 á laugardagsmorgun og eru allir keppendur beðnið um að mæta ekki seinna en 7:30 til að staðfesta þátttöku. Einnig viljum við koma því á framfæri að iðkendum SA hefur verið boðið á kvöldvöku sem Björninn mun standa fyrir á laugardagskvöldið eftir mót. Nánari upplýsingar koma bráðlega.
12 ára og yngri C
Snjólaug Vala Bjarnadóttir
10 ára og yngri C
Andrea Dögg Jóhannsdóttir
Ásdís Rós Alexandersdóttir
Birna Pétursdóttir
Erna Sjöfn Styrmisdóttir
Guðbjörg Þóra Stefánsdóttir
Halldóra Hlíf Hjaltadóttir
Sylvía Rán Gunnlaugsdóttir
Sólbjörg Jóna Sigurpálsdóttir
Steinunn Alda Gunnarsdóttir
Urður Steinunn Frostadóttir
8 ára og yngri C
Katrín Birna Vignisdóttir
Hulda Dröfn Sveinbjörnsdóttir
Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir
Guðrún Brynjólfsdóttir
Krista Björg Rúnarsdóttir
Særún Halldórsdóttir
Aldís Rún Ásmundsdóttir