Krulla í kvöld - aðstoð óskast


Krullutími verður á venjubundnum tíma í kvöld.

Von er á skólahópi þannig að þörf er á reyndu krullufólki til aðstoðar og leiðbeiningar fyrir gestina. Þeir sem vilja mæta og æfa sig eða spila geta það að sjálfsögðu líka. Þetta verður væntanlega næstsíðasti krullutíminn hjá okkur fyrir sumarfrí - reiknum með að krulla aftur mánudagskvöldið 14. maí.