Karfan er tóm.
Íslenska kvennalandsliðið mun ekki taka þátt í heimsmeistaramóti á vegum Alþjóða íshokkísambandsins í ár en þess í stað verður haldið mót hér á Akureyri sem fram fer í byrjun apríl, svonefnd NIAC-mót, en þetta mun vera í annað skiptið sem þetta mót er haldið. Síðasta vor komu hingað bæði dönsk og sænsk lið til keppni á NIAC-mótinu og heppnast það mót í alla staði mjög vel. Skipulagning og undirbúningur mótsins hefur verið á höndum Margrétar Ólafsdóttur, Guðrúnar Blöndal og Söruh Smiley í samvinnu við ÍHÍ og þegar þessar línur eru skrifaðar hafa tvö erlend lið staðfest komu sína, annars vegar rúmenska landsliðið og hins vegar breska félagsliðið Slough Phantoms.
Íslenska landsliðið fær þarna verðuga andstæðinga en endanlegur hópur hefur nú verið valinn í framhaldi æfingabúða um síðustu helgi. Þjálfari liðsins er Sarah Smiley, en hún mun jafnframt spila með liðinu og því er henni til aðstoðar við þjálfun liðsins Josh Gribben.
Kvennalandslið Íslands árið 2010 er skipað eftirtöldum leikmönnum: