Það er óhætt að segja að mikið verði um að vera í Skautahöllinni í dag. Opnun vetraríþróttahátíðar og 10 ára afmælishátíð Skautahallarinnar hefst kl. 16:00 í dag auk þess sem tveir hokkíleikir fylgja í kjölfarið. Dagskrá hátíðarinnar hefst á skrúðgöngu inn á ísinn sem í verða fulltrúar vetraríþrótta hér í bænum m.a. snjósleðar, hjól og hestar. Í framhalidnu taka við nokkur ávörp og síðan kynning á íslensku keppendunum á Ólympíuleikunum.
Þegar þeirri kynningu lýkur tekur við sýning frá Listhlaupadeild þar sem fleiri tugir skautar munu taka þátt. Því næst verður svo boðið upp á kaffi og kökur uppi á svölum og pöllum. Strax á eftir sýningunni hefst svo upphitun leikmanna fyrir leik SA og SR sem hefst laust eftir kl. 17:00. Á eftir karlaleiknum spila svo SA yngri og Björninn í kvennaflokki.