Karfan er tóm.
Dagskráin er svona:
Hver leikur verður 2 x 20 mín. lotur með fimm mínútna hlé á milli, ekkert klukkustopp. Farið verður yfir ísinn á milli leikja. Fyrir sigur fær lið 3 stig en jafntefli gefur hvoru liði 1 stig. Í úrslitaleikina er raðað eftir stigafjölda en ef lið eru jöfn að stigum er farið fyrst eftir innbyrðis viðureignum og svo markatölu.
Mótsgjald er 2000 kr. á mann. Þeir (auðvitað allir) sem ætla að vera í mat á laugardaginn verða að panta á föstudagskvöldið. Verð á mat er 2000 kr. og (létt)öl selt á 600 kr.
Fimmtudagur 11.02.2010Kl. 20:00 SA a – SA b
Föstudagur 12.02.2010Kl. 22:00 SA a – Björninn
Kl. 23:00 SA b – SR
Kl. 24:00 SR – Björninn
Laugardagur 13.02.2010Kl. 17.20 SA a – SR
Kl. 18:20 SA b – Björninn
Kl. 19:20 Spilað um 3. og 4. sæti
Kl. 20:20 Spilað um 1. og 2. sæti
Kl. 21:30 Kjúklingur og grín hjá Garðari mölla á Vegi-terian