Karfan er tóm.
Þrátt fyrir getumuninn var hér um gríðarlega mikilvæga reynslu fyrir okkar leikmenn að ræða en tækifæri til að spila við erlend lið hér á landi eru allt of fá. Mótið í heildina heppnaðist mjög vel og gestirnir voru mjög ánægðir með ferðina, en auk þess að spila íshokkí fór liðið á skíði og fór í jarðböðin í Mývatnssveit. Veðrið lék við leikmennina meðan á mótinu stóð, snjór yfir öllu en sólskin og blíðviðri sem allt hjálpaði til við að gera mótið og heimsóknina enn eftirminnilegri.
Vonandi verður áframhald á þessum skemmtilega viðburði og eiga skipuleggjendur miklar þakkir skilið fyrir mikla vinnu og mikinn undirbúning í aðdraganda mótsins og að öðrum ólöstuðum hvíldi undirbúningurinn að mestu á herðum Margréti Ólafsdóttur, Söruh Smiley og Guðrúnu Blöndal. Lengi framan af var gert ráð fyrir fleiri liðum en bæði Rúmenía og Belgía forfölluðust og því varð að gera það besta úr stöðunni sem upp er komin og óhætt er að segja að það hafi tekist.
En þegar einu líkur tekur annað við, því strax á morgun hefst úrslitakeppnin í kvennaflokki í Reykjavík – meira um það síðar.