Okkar stelpur í 15. og 19. sæti á ISU Icechallenge


Elísabet Ingibjörg Sævarsdóttir og Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir luku keppni á ISU Icechallenge í Graz í Austurríki á miðvikudag.

Eftir fyrri daginn (stutt prógramm) voru þær í 18. og 20. sæti, en hækkuðu sig báðar í röðinni í frjálsa prógramminu. Hrafnhildur Ósk endaði í 19. sæti með 61,90 stig, en Elísabet Ingibjörg náði 12. besta árangrinum í frjálsa prógramminu og hækkaði sig þar með upp í 15. sætið í heildina. Hún endaði með 65,42 stig.

Hér eru tenglar á nánari upplýsingar og sundurliðun á skori þeirra í frjálsa prógramminu og samanlagt:
Skorið í frjálsa prógramminu 
Sundurliðun á skori í frjálsa prógramminu
Samanlagt skor og endanleg röð

Heimasíða mótsins  -  Úrslitasíða mótsins