Karfan er tóm.
Það er ekki nóg að mæta bara í eina lotu í hokkíleik, en það verður ekki af Bjarnarmönnum tekið að þeir spiluðu vel og í síðustu lotunni var ljóst hvort liðið var í líkamlega betra ástandi. Á meðan Björninn bætti í hægðist verulega mannskapnum okkar megin og tapið óumflýjanlegt. Þetta var vont kjaftshögg eftir góðan sigur á SR í fyrsta leik ársins og menn því aftur komnir niður á jörðina. Það er því ljóst að menn þurfa að girða sig í brók og dusta rykið af hlaupaskónum, það styttist óðum í úrslit.
Mörk SA skoruðu Jóhann Leifsson, Sigurður Sigurðsson og Josh Gribben - frekari tölulegar upplýsingar verða settar inn þegar leikskýrsla berst í hús.