SA Víkingar hefja leik í Evrópukeppninni kl 17.00 (bein útsending)

Leikmenn að snæða síðustu máltíðina
Leikmenn að snæða síðustu máltíðina

SA Víkingar hefja leik í Evrópukeppninni félagsliða í dag þegar liðið mætir Irbis Skate á heimavelli þeirra í Sofíu í Búlgaríu. Leikurinn hefst kl. 17.00 og er í beinni útsendingu hér. Liðið kom á keppnisstað í gær eftir sólahrings langt ferðalag og tók æfingu á ísnum strax við komu. Liðið lítur býsna vel út og menn merkilega hressir miðað við ferðalag og tilbúnir í átökin. Haft var eftir Jussi Sipponen þjálfara liðsins að "keppnin eru fyrst og fremst frábært skref fyrir félagið og góð reynsla fyrir leikmenn liðsins. Þetta er líka skemmtileg tilbreytni að keppa á erlendri grundu og sjá hvernig við stöndunm gagnvart sterkum félagsliðum erlendis".

Við sendum að sjálfsögðu góða strauma til Búlgaríu og treystum á að strákarnir verði félaginu til sóma.