Karfan er tóm.
SA Víkingar mæta Birninum í Hertz deildinni í dag, sunnudaginn 3. janúar en leikurinn hefst kl 19.00 í Skautahöllinni á Akureyri. Fyrri leikur dagsins verður hinsvegar Ynjur - Björninn í Hertz deild kvenna en leikurinn hefst kl 16.30.
SA Víkingar eru á miklu skriði og hafa unnið síðustu 7 leiki sína í deildinni og eru í efsta sæti með 34 stig. Björninn er í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig.
Ynjur eru í öðru sæti Hertz deild kvenna með 17 stig og Björninn í því þriðja með 6 stig.