Siggi Sig var heiðraður um helgina fyrir leikmannaferil sinn með Skautfélagi Akureyrar

Siggi Sig og börnin hans (mynd: Sigurgeir H.)
Siggi Sig og börnin hans (mynd: Sigurgeir H.)

Sigursælasti leikmaður Skautafélags Akureyrar frá upphafi hann Sigurður Sveinn Sigurðsson var heiðraður af félaginu nú um helgina. Vígsla á nýjum risaskjá í Skautahöllinni var notað sem tilefni fyrir heiðrunina og stal senunni í upphafi leiks SA Víkinga og SR í Hertz-deild karla. Þá var treyju númerið hans Sigga fryst af félaginu en það þýðir að enginn leikmaður getur borið treyju númerið 13 í meistaraflokki karla héðan í frá. Til marks um það var fáni með númerinu hans Sigga og nafninu hans hengur upp í Skautahöllinni og var afhjúpaður af börnunum hans Sigga en þau bera öll númerið hans Sigga í yngri flokkum SA. Það kom þó fram í ræðunni að þau ein fái undantekningu frá þessari frystingu.

Siggi Sig lagði skautanna á hilluna eftir síðasta vor en þá hafði hann í meistaraflokki samfleytt frá árinu 1991 þegar Íslandsmótið hófst. Á sínum ferli spilaði Siggi í 27 ár í meistaraflokki og vann 21 Íslandsmeistaratitil -19 þeirra með Skautafélagi Akureyrar og 2 með Skautafélagi Reykjavíkur. Hann var í sigurliði SR sem vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1998 og það var því við hæfi að Skautafélag Reykjavíkur tók þátt í heiðruninni og ahentu honum gjöf frá félaginu. Siggi vann fleiri Íslandsmeistaratitla en nokkur annar leikmaður í félagsliði á Íslandi í meistaraflokki karla en minnisvarða um alla titla Skautafélagsins var komið fyrir í Skautahöllinni við sama tilefni. Siggi er einnig leikjahæsti, markahæsti og stigahæsti leikmaður Íslandsmótsins frá upphafi en hann lék 400 leiki í meistaraflokki, skoraði 292 mörk, gaf 280 stoðsendingar og var með 572 stig.

Ljósmyndir frá heiðruninni og kvöldinu í heild sinni eru komnar á heimasíðuna okkar en þær eru frá þremur mismunandi ljósmyndurum en brot af því besta má sjá hér að neðan. Ljósmyndirnar eru frá Sigurgeiri Haraldssyni, Ásgrími Ágústssyni og Þóri Tryggvasyni. Upptaka frá kvöldinu og leiknum í heild sinni má einnig finna hér en heiðrunin hefst eftir 26 mín á upptökunni.