Þriðji leikur á laugardag

3. leikur í úrslitakeppninni í Hertz-deild kvenna í íshokkí er á laugardag 9. apríl kl. 19:30 í Skautahöllinni. Staðan í einvíginu er 2-0 en þrjá sigra þarf til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn og getur SA því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.
 
-Í 2. leikhléi verður keppt í pekkjakasti.
-Pizzusala í sjoppu svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!