Til foreldra 4.fl. vegna Bautamótsins

Nú leitum við til ykkar eftir aðstoð við að fylla borð af kræsingum fyrir gestina. Ath foreldrakaffi er bara fyrir foreldra ekki keppendur. Gott væri að fá að vita hvort þið sjáið ykkur fært að aðstoða okkur við að seðja hungrið hjá gestunum meðan á mótinu stendur

     Til foreldra barna í 4. flokki.

Heil og sæl.  

Helgina 4.-5. febrúar verður haldið

4. flokks mót í íshokkí í skautahöllini og munu skautafélög SA, SR, og Björninn mæta þar með fríðan flokk barna, til að efla íþróttaandan og spila íshokkí. Mótið byrjar á laugardag 4. febrúar og stendur fram á sunnudag 5. febrúar.

Leikjaskrá er HÉR Þegar svona mót eru haldin og gestir koma í heimsókn sem koma langt að er vaninn að  boðið er  upp á kaffi og meðlæti og hefur það verið kallað foreldrakaffi, hafa þá foreldrar barna í viðkomandi flokk séð um léttar veitingar. .

Einnig vantar okkur foreldra til að aðstoða við mótið um helgina 2 tíma í senn.

Endilega leyfið okkur að heyra fá ykkur hver vill baka hvað eða vinna hvenær síðasta lagi fimmtudagskvöld.

baejarv@centrum.is

eða s. 894-5692 

Fh foreldrafélagsins

Þorsteinn Vignisson