Karfan er tóm.
Á morgun hefst heimsmeistaramót U18 í 3. deild í Mexíkó og íslenska landsliðið lagði af stað í þetta langa ferðalag í fyrradag. Keppnin sjálf fer fram í höfuðborginni Mexíkóborg sem er ein stærsta borg í heimi. Mótherjar Íslands að þessu sinni eru þjóðir sem við erum kunnugir en það eru Írland, Ísrael, S-Afríka auk gestgjafanna sjálfra Mexíkóa. Karlalandsliði hefur lagt öll þessi lið að velli og yngri landsliðin einnig. Ef liðið spilar vel á það mjög góða möguleika á þessu móti, verðlaunasæti er lágmarkskrafan og gullið draumurinn.
Þó mótið hefjist á morgun hefst keppni ekki hjá íslenska liðinu fyrr en þann 14. eða á öðrum degi keppninnar og fyrsti leikurinn verður gegn Ísrael. Leikir íslenska liðsins eru annars sem hér segir;
Gegn Ísrael 14.03
Gegn Írlandi 16.03
Gegn S-Afríku 18.03
Gegn Mexíkó 19.03
Það verður mikið ævintýri fyrir strákana spila síðasta leik mótsins gegn heimamönnum, væntanlega fyrir fullri höll. Það getur verið erfitt að spila í Mexíkóborg sérstaklega fyrir okkur sem búum við sjávarmál því borgin er ein af þeim hæstu í heimi og stendur í 2258m en þess má til gamans geta að hæsti tindur Íslands, Hvannadalshnjúkur er 2.119m. Loftið er því töluvert þynnra þarna og þar standa heimamenn best að vígi.
Við í Skautafélagi Akureyrar eigum fimm fulltrúa í þessu liði, en það eru þeir;
Einar Eyland
Jóhann Leifsson
Ingþór Árnason
Sigurður Reynisson
Ingólfur Elíasson.
Þeim og öllum hinum í liðinu óskum við góðs gengis í komandi átökum. Fyrir þá sem vilja fylgjast betur með strákunum þá má allar upplýsingar finna á vef Alþjóða Íshokkísambandsins hér og leikirnir verða jafnvel beint á netinu.