U18 ára liðið spilar í dag við Írland í öðrum leik sínum á HM í Mexíkóborg. Fyrsti leikurinn var gegn Ísrael í fyrradag og hann vannst nokkuð létt eða 12 - 0. Í lok leiks var Sigurður Reynisson valinn maður leiksins sem er ekki amalegt í sínum fyrsta landsleik. Tækinni fleygir fram og það er gaman að segja frá því að leikirnir eru aðgengilegir á netinu beint, sem er auðvitað frábrært fyrir hokkíáhugafólk og sérstaklega fjölskyldurnar heima.Leikurinn verður kl. 16:00 að staðartíma en það er kl. 22:00 í kvöld. Áfram Ísland!