U18 landslið Íslands hefur leik á HM í dag

U18 ára landslið Íslands hefur leik í dag á heimsmeistaramótinu í íshokkí í 3. deild A sem fram fer í Istanbul í Tyrklandi. Fyrst i leikur liðsins er í dag kl. 13.30 en þá mætir liðið Belgíu en beina útsendingu má finna á youtube rás Tyrkneska Íshokkísambandsins.  

Auk Íslands eru í riðlinum eru Belgía, Ísrael, Mexíkó, Kínverska Taipei og heimliðið Tyrkland. Fylgjast má með dagskránni ásamt stöðu mótsins á heimsíðu alþjóða íshokkísambandsin.

Leikjadagskrá Íslands.

11. apríl kl. 13:30  Ísland - Belgía

12. apríl kl. 10:00  Ísrael - Ísland

14. apríl kl. 17:30  Ísland - Tyrkland

15. apríl kl. 13:30  Mexíkó - Ísland

17. apríl kl. 10:00  Ísland - Kínverska Taipei

SA á sjö fulltrúa í liðinu en fjórir af þeim leika nú með félagsliðum í Svíþjóð og aðalþjálfari liðsins er okkar eigin Rúnar Freyr Rúnarsson.

Leikmenn SA í liðinu:

Alex Máni Sveinsson

Arnar Helgi Kristjánsson

Bergþór Bjarmi Ágústsson

Helgi Þór Ívarsson

Ólafur Baldvin Björgvinsson

Ormur Karl Jónsson

Uni Steinn Sigurðarson Blöndal

 

Áfram Ísland!