Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna

Fyrsti leikur í úrslitakeppninni í Hertz-deild kvenna í íshokkí hefst þriðjudaginn 5. apríl en þá taka SA stúlkur á móti Fjölni í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19:30. SA eru deildarmeistarar og byrja því á heimavelli en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí.
Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.
 
-Skautasýning í 1. leikhléi
-Í 2. leikhléi verður keppt í pekkjakasti.
 
Sjoppan selur pizzur og samlokur svo engin þarf að fara svangur heim. Áfram SA!
 
Leikirnir í úrslitakeppninni:
Leikur 1: Þriðjudaginn 5. apríl á Akureyri kl. 19:30
Leikur 2: fimmtudaginn 7. apríl í Reykjavík
Leikur 3: laugardaginn 9. apríl á Akureyri
* 4. leikur 12. apríl í Reykjavík.
* 5 leikur 14. apríl á Akureyri.
* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.