Viðburðarík helgi hjá Listhlaupadeild SA!

Í dag hélt LSA hina árlegu jólasýningu sem að þessu sinni stóð undir heitinu Draumar rætast og var samvinnuverkefni iðkenda og þjálfara þeirra. Þetta var hin ánægjulegasta skemmtun og megum við vera stolt af skauturum okkar sem lögðu sig mikið fram. 

Skautakona ársins 2017

Að venju var skautakona ársins hjá LSA sem kosin er stjórn deildarinnar heiðruð að lokinni jólasýningu. Skautakona LSA í ár er Marta María Jóhannsdóttir og var hún valin fyrir framúrskarandi árangur á árinu, góða ástundun og fyrir það að vera mjög góð fyrirmynd annarra skautara. Marta María er nýkrýndur Íslandsmeistari í Junior flokki.

Innilega til hamingju Marta María.

Ísold Fönn 

En fleira ánægjulegt gerðist þessa helgi.  Hún Ísold okkar Fönn Vilhjálmsdóttir gerði sér lítið fyrir og landaði sigri í keppnisflokki Advanced Novice á Grand Prix mótinu í Braislava um helgina. Hún fékk 93,39 stig samtals úr báðum prógrömmum.  Hún var ein 33 keppenda frá 10 löndum.

Innilega til hamingju Ísold Fönn.

Stjórn vill jafnframt nota tækifærið og þakka bæði foreldrafélaginu fyrir þeirra framlag til jólasýningarinnar með myndarlegri sölu á vöfflum og heitu súkkulaði. Ekki síður vill stjórn þakka öðrum freldrum sem lögðu hönd á plóginn við undirbúning sýningarinnar með einum eða öðrum hætti og eins við frágang á eftir. 

Þjálfarateymið með formanni LSA

Fimm þjálfurum okkar þökkum við óeigingjarnt starf í haust og vetur.

Gleðileg jól til ykkar allra og farsælt komandi ár.

Stjórnin.