Karfan er tóm.
Okkar menn eiga mikilvægan leik í Laugardalnum í kvöld. Hvetjum SA-fólk í höfuðborginni til að mæta og
hvetja.
Í kvöld fer fram mikilvægur leikur á Íslandsmótinu í íshokkí, meistaraflokki karla. Víkingar eru á suðurleið og
mæta SR í Skautahöllinni í Laugardagl kl. 20.15 í kvöld. Víkingar geta með sigri í kvöld farið í 38 stig og náð
þriggja stiga forystu á Björninn, en þessi lið mætast einmitt í lokaumferðinni laugardaginn 2. mars í Egilshöllinni. Þegar upp er
staðið gæti því farið svo að ekki skipti aðeins máli að sigra í leiknum í kvöld og/eða lokaleiknum, heldur einnig hver
markatalan verður.
Víkingar eru reyndar ekki eina hokkífólkið á faraldsfæti þessa helgina. Þriðji flokkur tekur þátt i helgarmóti í
Egilshöllinni á laugardag og sunnudag og Ynjur mæta SR í Laugardalnum á sunnudagskvöld kl. 20.15
Það er því full ástæða til að hvetja SA-fólk í höfuðborginni til að mæta í Laugardalinn í kvöld og
hvetja Víkingana til sigurs.
Staðan í deildinni (ÍHÍ).