Íslandsmótið: Garpar Íslandsmeistarar

Ævintýralegur viðsnúningur í leik Garpa gegn Víkingum tryggði þeim titilinn.

Akureyrarmót SA

Skautahöllinni Akureyri

16. apríl

Fyrir A, B og C keppendur LSA

Lokadagur Skráninga og greiðslu keppnisgjalda er 04.04. 2011

Tap fyrir Nýja Sjálandi í fyrsta leik á HM kvenna.

Í gærkvöldi spilaði íslenska kvennalandsliðið sinn fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í Reykjavík.  Mótherjarnir voru andfætlingar okkar frá Nýja Sjálandi og það er skemmst frá því að segja að okkar stúlkur biðu 3 - 1 ósigur.  Íslenska liðið fór þó vel af stað og skoraði fyrsta mark leiksins í fyrstu lotu en þar var á ferðinni Birna Baldursdóttir eftir sendingu frá Guðrúnu Blöndal.  Nýja Sjáland jafnaði leikinn fyrir lok lotunnar og bættu svo við tveimur mörkum fyrir leikslok.

B-hópur

Af-ís fellur niður hjá Söru Smiley í dag.

Íslandsmótið: Lokaumferð

Í kvöld, mánudagskvöldið 28. mars, fer fram fjórtánda og síðasta umferð Íslandsmótsins.

Sýning til styrktar krabbameinsfélagsins

Stórglæsileg sýning hjá stelpunum í sýningarhópnum, allt gekk mjög vel. Fullt var á áhorfendapöllunum og allir skemmtu sér stór vel yfir glæsilegri sýningu. Til hamingju stelpur!! 

FJÁRÖFLUN

Listhlaupakrakkar, ef þið seljið pappír til fjáröflunar þá fáið ÞIÐ ágóðann af hverri pk. sem að þið seljið beint í ykkar vasa. 

Allý, allyha@simnet.is / 8955804

Landsliðsstarf um helgina

Um helgina verður mikið um að vera í hokkíinu þar sem bæði karla- og kvennalandsliðin verð að störfum auk þess sem 3. flokks mót fer fram í Egilshöllinni með tveimur finnskum liðum.  HM kvenna hefst í Reykjavík á sunnudaginn og liðið mun hittast í Reykjavík í kvöld og taka æfingaleik gegn strákaliði úr birninum en á morgun verður æfingaleikur gegn Nýja Sjálandi.  Það mikilvægt að fá þessa æfingaleiki fyrir heimsmeistaramótið og stilla saman strengi liðsins.

2. æfingabúðir karlalandsliðsins fara fram á Akureyri um helgina.  Fækkað var um þrjá leikmenn í hópnum eftir síðustu helgi, en um helgina bætast við strákar úr U18 ára liðinu og samkeppnin um sæti í liðinu harðnar enn frekar.  Æfingabúðirnar hefjast á föstudagskvöldið og lýkur á sunnudags eftirmiðdag.

Sýning á laugardaginn

Á laugardaginn fer fram sýning hér í Skautahöllinni til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis á vegum sýningarhóps Listhlaupadeildar.  Sýningarhópinn skipa 12 stelpur sem allar hafa æft hjá félaginu í mörg ár en ákváðu að stofna þennan fyrsta sýningarhóp félagsins í haust.  Hópurinn hefur verið með sýningaratriði á mótum auk þess sem hann kom fram í leikhléi í úrslitaleiknum í Íslandsmótinu í íshokkí.

Íslandsmótið: Fálkarnir tryggðu sér bronsið

Garpar enn efstir, Mammútar héldu lífi í titilvoninni eftir algjöran viðsnúning gegn Skyttunum.