Karfan er tóm.
Ný afstöðnu Akureyrarmóti lauk með því að sigurvegararnir, Rokk, réðu ekki við frægðina og lögðu niður liðið. Nú er hins vegar hafið Bikarmót Magga Finns og 4 lið tilkynntu þátttöku í það mót, Garpar, IceHunt, SMÓK, og Víkingar.
Leikreglur eru þannig að allir leika við alla, 6 endar, jafntefli ekki leyfð og tekið er eitt vítaskot í byrjun leiks. Öll vítaskot telja.
Í fyrstu umferð drógust saman annars vegar Garpar og IceHunt, og hins vegar SMÓK og Víkingar. Leikjunum lauk með sigri Garpa og SMÓK. Í næstu umferð leika Víkingar við Garpa og SMÓK og IceHunt.
Úrslit og fleiri upplýsingar má finna hér.