Bikarmót Magga Finns 2015

Leikir í annari umferð voru spennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu endum.  Garpar sigruðu Víkinga 5-3 og IceHunt sigraði SMÓK 4-3. 

Fyrir síðustu umferð standa Garpar best að vígi með tvo vinninga og geta tryggt sér titilinn með sigri á SMÓK í síðustu umferð. IceHunt  og SMÓK geta enn tryggt sér titilinn með sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum. Möguleiki er á því að 3 lið verði jöfn að stigum, með innbyrðis sigra í kross og gilda þá vítaskot. IceHunt standa best að vígi í vítaskotum en eru þó ekki öruggir með besta skor. Rétt er að geta þess að öll vítaskot telja.

 Síðustu leikir mótsins verða leiknir á mánudag 14. Des kl. 20:30. Þá leika IceHunt við Víkinga á 4. braut og Garpar leika við SMÓK.  IceHunt og Garpar leika með dökkum steinum og hefja upphitun.

Úrslit, skor og vítaskot má sjá hér.