Ice Cup - opnunarhóf og dregið til fyrstu umferðar

Hólmfríður Þórðardóttir, Sara Wolfe, Sandra Takata. Tveir erlendir keppendur eru á Ice Cup þetta ári…
Hólmfríður Þórðardóttir, Sara Wolfe, Sandra Takata. Tveir erlendir keppendur eru á Ice Cup þetta árið, þær Sarah frá Bandaríkjunum (Alaska) og Sandra frá Kanada (Ontario).
Opnunarhóf Ice Cup fór fram í kvöld á óvenjulegum stað. Eins og við var að búast var vel tekið á móti gestum í verbúðinni hjá Kidda Þorkels. Dregið var um það hvaða lið mætast í fyrstu umferðinni.

Þrátt fyrir nokkrar séróskir um tímasetningar leikjum fyrstu umferðar tókst drátturinn vel og allt féll eins og flís við rass. Með ilmandi hákarl, reyktan rauðmaga, rúgbrauð með reyktum laxi, harðfisk með smjöri og annað góðgæti sem tilheyrir á borðum gerði krullufólk sig klárt fyrir átök helgarinnar. Hermann Jón Tómasson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, var mættur í verbúðina til að draga saman lið í fyrstu umferðina.

Leikir 1. umferðar:

Kl. 11.00

Braut 2: Ísmeistarar - Hákarlar

Braut 4: Svarta gengið - Mammútar

Braut 5: Víkingar - Riddarar

Kl. 13.30

Braut 2: Fífurnar - Skytturnar

Braut 4: Garpar - Bragðarefir

Braut 5: Mánahlíðarhyskið - IceCatz

Krullufókl er hvatt til að vera tilbúið á svellinu tíu mínútum fyrir leik til upphitunar. Óskað er eftir því að að minnsta kosti tveir frá hverju liði sem er að fara að keppa mætti strax að loknum næsta leik á undan til að gera svellið klárt. Önnur umferð hefst síðan kl. 16.30 en lokaleikir fimmtudagsins hefjast kl. 19.00. Þau lið sem eiga eftir að greiða þátttökugjaldið eru beðin um að gera það í sjoppunni fyrir fyrsta leik.

Leikjadagskrá, liðin og reglur - excel-skjal hér.