MONDOR skautavörur

Nú þegar vetrarstarfið er að hefjast er tilvalið að minna á að ég er með í umboðssölu MONDOR skautavörur frá Everest.    S.s. sokkabuxur, flísbuxur, skautahlífar o.fl.

Endilega hafið samband í síma 662 5260 eða rakelhb@simnet.is

Kveðja, Rakel Bragadóttir.

Krulluæfing mánudaginn 29. ágúst

Önnur krulluæfing "vetrarins" verður mánudagskvöldið 29. ágúst kl. 20. Mæting á fyrstu æfinguna núna í vikunni lofar góðu. Steinarnir renna og spennandi tímar framundan. Mættu!

Enginn afís í Laugargötu í dag

Í dag þriðjudaginn 23.ágúst verður ekki afís í Laugargötu líkt og verður í vetur.

Skráning og greiðslur æfingagjalda

Aðalskráningardagur og greiðslur æfingagjalda allra iðkenda verður sunndaginn 28.ágúst kl:17.00-18.00 – þá verður ísinn opinn ef iðkendur vilja taka forskot á sæluna og skella sér á skauta. Þeir sem skrá sig á þessum degi fá Samherjastyrk til niðurgreiðslu æfingagjalda að upphæð kr.5.000. 

Æfingabúðir 3.flokkur + , Tilkynning frá Josh

To all hockey players interested in playing for SA Mens hockey teams this season. There is a training camp scheduled for this coming week beginning on Monday the 22nd of August and if you are unable to attend any of the scheduled items and are interested in playing this year, please contact Josh Gribben by telephone or email. Thank you and i look forward to seeing everyone on Monday at 18:30.

Æfingar byrja NÆSTA ÞRIÐJUDAG

Kæru foreldrar og iðkendur,

Æfingar byrja þriðjudaginn næsta þ.e. 23. ágúst. Haft verður samband við þá iðkendur sem munu æfa með eldri eða yngri flokki en sínum eigin og einnig þá sem æfa með fleiri en einum flokki í næstu viku varðandi þá tímatöflu sem þeir munu fylgja. Af-ís tímar munu byrja í september eftir að búið verður að ráða aðstoðarþjálfara. Ef þið hafið einhverjar spurningar vinsamlegast hafið samband við Söru á hockeysmiley@gmail.com.  Smelltu á “lesa meira” til að sjá flokkaskiptingar og æfingatíma.

Tímabilið senn að hefjast

Mótafyrirkomulag í meistaraflokki karla liggur nú fyrir en það er ánægjulegt frá því að segja að þessu sinni munu fimm lið taka þátt í Íslandsmótinu.  Við munum líkt og í fyrra tefla fram bæði Víkingum og Jötnum og Björninn mun einnig tefla fram tveimur liðum og SR einu liði.  Spilaðar verða 4 umferðir fyrir utan úrslitakeppni og líkt og á síðasta tímabili verða einhverjar tilfærslur á milli liða leyfilegar en endaleg útfærsla á því liggur ekki enn fyrir, a.m.k. ríkir mikil þögn á heimasíðu Íshokkísambandsins um málið enda ekki verði sett inn frétt þar síðan í maí.

 

Drög að tímatöflu haustannar 2011

Hér eru drög að tímatöflu LSA haustönn 2011. Æfingar samkvæmt tímatöflu hefjast sunnudaginn 21 ágúst. Búið er að breyta nöfnum á hópunum, A hópur sem var í fyrra er nú hópur 1 samkvæmt timatöflunni, B hópur er 2, C hópur er 3, hópur 4 eru skautarar sem eru að draga sig úr keppni en vilja halda áfram að skauta. Betri útfærsla/skýring á nöfnum hópanna kemur síðar.

Hér má sjá drög að hópaskiptingu en endanleg hópaskipting verður klár eftir 1 -2 vikur. 

PAPPÍRSSALA

Bara benda ykkur á að öll sala á pappír er einstaklings fjáröflun ekki hóp fjáröflun, þ.e. ágóðinn af því sem að þú selur fer í þinn vasa.

Allý / allyha@simnet.is - 8955804

Seinasta vika ágústbúða að fara að byrja og æfingar samkvæmt tímatöflu hefjast 20 ágúst

Nú er seinasta vika ágústbúðanna að fara að byrja, búðirnar eru búnar að ganga vel og allair hafa staðið frábærlega.

Æfingar samkvæmt tímatöflu hefjast laugardaginn 20 ágúst og verður tímatafla 2011-2012 birt strax í byrjun næstu viku.

Það eru laus pláss í seinustu viku æfingabúðanna ef það eru einhverjir sem vilja taka forskot á veturinn og taka þátt í seinustu vikunni endilega hafið samband formadur@listhlaup.is