Akureyrarmótið: Frestaðir leikir

Mánudagskvöldið 17. október, leika Víkingar og Garpar annars vegar og Skytturnar og Svartagengið hins vegar.

Leikur Víkinga og Garpa er úr fyrstu umferð mótsins og var frestað vegna þátttöku Garpa í Evrópumótinu. Leikur Skyttanna og Svartagengisins átti að fara fram mánudagskvöldið 12. október en var frestað vegna forfalla. Báðir leikirnir fara fram mánudagskvöldið 17. október.

Einnig skal á það minnt að skráningarfrestur í tvímenningsmótið rennur út á mánudagskvöld. Upplýsingar um keppnina, helstu atriði úr reglunum og tengill á reglurnar í heild má finna í fyrri frétt hér.