Íslandsmótið í krullu - Víkingar og Garpar í úrslitin

Víkingar og Garpar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Íslandsmótsins í Krullu. Norðan 12 og Skytturnar berjast um síðasta lausa sætið.

Víkingar og Garpar sigruðu andstæðinga sína í kvöld og tryggðu sér þar með sæti í úrslitunum ásamt Mammútum. Mammútar hafa nú 15 stig, Víkingar 14 og Garpar 13. Tvö lið berjast um fjórða sæti úrslitanna í lokaumferðinni, Norðan 12, sem hefur 11 stig, og Skytturnar sem eru með 10 stig.

Úrslit kvöldsins urðu þau að Garpar sigruðu Norðan 12, Víkingar sigruðu Skytturnar, Riddarar sigruðu Bragðarefi og Kústarnir sigruðu Svarta gengið.

Með sigrinum á Skyttunum í kvöld fóru Víkingar í 14 stig og eiga því enn möguleika á efsta sætinu í undankeppninni. Garpar eru öruggir með þriðja sætið í undankeppninni. Þeir hafa lokið keppni og náðu 13 stigum. Norðan 12 getur náð þeim að stigum með sigri á Fífunum í lokaumferðinni en Garpar myndu engu að síður halda þriðja sætinu þar sem liðið sigraði Norðan 12 og innbyrðis viðureignir ráða röð liða sem enda jöfn að stigum. Raunar nægir Norðan 12 jafntefli í lokaumferðinni því þá færi liðið í 12 stig. Skytturnar gætu þá náð þeim að stigum en Norðan 12 sigraði í innbyrðis viðureign þessara liða og yrði því ofar í röðinni. Eftir tapið gegn Víkingum í kvöld, það fjórða í síðustu fimm leikjum, er eina vonin fyrir Skytturnar að komast í úrslit að liðið sigri Svarta gengið í lokaumferðinni og að Norðan 12 tapi gegn Fífunum.

Staðan hefur sem sagt skýrst nokkuð eftir leiki kvöldsins:
  • Mammútar: 15 stig, leika gegn Fálkum í lokaumferðinni. Geta farið í 17 stig, enda í 1. eða 2. sæti undankeppninnar og hefja því úrslitakeppnina með 2 eða 3 stig.
  • Víkingar: 14 stig, leika gegn Riddurum í lokaumferðinni. Geta farið í 16 stig, enda í 1. eða 2. sæti undankeppninnar og hefja því úrslitakeppnina með 2 eða 3 stig.
  • Garpar: 13 stig, hafa lokið sínum leikjum. Enda í 3. sæti undankeppninnar og hefja því úrslitakeppnina með 1 stig.
  • Norðan 12: 11 stig, leika gegn Fífunum í lokaumferðinni. Enda í 4. eða 5. sæti undankeppninnar, nægir jafntefli í lokaleiknum til að komast í úrslitin. Komist Norðan 12 í úrslitin hefur liðið keppni þar með ekkert stig.
  • Skytturnar: 10 stig, leika gegn Svarta genginu í lokaumferðinni. Enda í 4. eða 5. sæti undankeppninnar. Liðið verður að sigra í lokaleik sínum og treysta á tap hjá Norðan 12 til að komast í úrslitin. Komist Skytturnar í úrslitin hefja þær keppni þar með ekkert stig.
  • Bragðarefir: 10 stig, hafa lokið keppni í 6. sæti. Áttu enn von um sæti í úrslitakeppninni fyrir lokaumferðina en sú von varð að engu með tapinu gegn Riddurum.  
  • Kústarnir hafa lokið keppni með 9 stig og enda í 7. eða 8. sæti. Ef Riddarar sigra Víkinga í lokaumferðinni fara þeir upp fyrir Kústana vegna úrslita í innbyrðis viðureign.
  • Riddarar eru nú í 8. sæti með sjö stig, Fífurnar í 9. sæti með 6 stig og Svarta gengið í 10. sæti með fimm stig. Þessi þrjú lið geta skipst á sætum eftir því hvernig úrslit lokaumferðarinnar verða.
  • Fálkar eru sem fyrr í neðsta sætinu, hafa tvö stig.

Lokaleikir undankeppninnar fara fram mánudagskvöldið 7. apríl:

Braut 2: Víkingar - Riddarar
Braut 3: Fífurnar - Norðan 12
Braut 4: Svarta gengið - Skytturnar
Braut 5: Mammútar - Fálkar

Ísumsjón: Fálkar, Fífurnar, Skytturnar, Norðan 12

Leikjadagskrá og úrslit leikja í excel-skjali hér.