Mammútar sigruðu Garpa

Mynd: Ásgrímur Ágústsson
Mynd: Ásgrímur Ágústsson


Einn leikur fór fram á Akureyrarmótinu í krullu í gærkvöldi.

Leik Garpa og Mammúta var flýtt vegna Tyrklandsferðar Mammúta, en leikurinn er úr þriðju umferð mótsins. Úrslitin urðu þau að Mammútar sigruðu 8-2.

Leikjadagskrá og úrslit má finna í excel-skjali hér.

Í kvöld verður krullukvöld á veitingastaðnum Strikinu - sjá nánar í fyrri frétt hér.