Karfan er tóm.
Víkingar náði í kvöld mikilvægum stigum af Birninum í Grafarvogi með góðum 8 - 3 sigri. Víkingar náðu þar einnig að koma fram hefndum eftir grátlegt tap í framlenginu síðasta þriðjudag en það er greinilegt að bæði lið kunna vel við sig á útivelli. Eitt af einkennum Bjarnarmanna er að byrja af miklum krafti og það gerðu þeir í kvöld og komust yfir strax á fyrstu sekúndum leiksins.
Víkingar létu það þó ekki á sig fá heldur snéru leiknum fljótt við og svöruðu með fjórum mörkum. Staðan var því 4 - 1 eftir fyrstu lotu og þar var grunnurinn lagður að sigrinum. Önnur lota var jafnari en hana unnu Víkingar engu að síður 2 - 1 og síðan þá þriðju með sömu markatölu, lokastaðan 8 - 3.
Skautataska er besta jólagjöf skautabarnsins. Enn á ég til skautatöskur sem eru með sér hólfi fyrir skautana, einlitar og munstraðar en munstruðu töskunum fer fækkandi, mjúku skautahlífarnar sem eru nauðsinlegar á skautann í töskunum og svo mondor skauta buxurnar þessar svörtu sem koma niður fyrir skautann. Endilega hafið samband sem fyrst ef þið eruð að spá í eitthvað af þessu fyrir jólin því að ég þarf nokkra daga ef ég þarf að panta það sem vantar.
Allý, allyha@simnet.is / 8955804