Karfan er tóm.
Halló, kertin sem við munum taka eru sömu og í fyrra 2 saman í pk. og eru 14 pk. í kassa, en ekki þau sem ég var búin að gefa upp. Það eru ekki margir búnir að láta vita en allir krakkar sem eru að æfa og keppa í A,B og C hópum geta selt kertin og safnað upp í skautaæfingabúðirnar sem verða í sumar eða í keppnisferðir nú ef þú hættir að æfa þá færðu peninginn þinn greiddan út. Endilega sendið mér mail sem fyrst svo að hægt sé að fara að panta þau og byrja að selja. Þetta eru hvít tólgarkerti og brenna vel.
kv. Allý - allyha@simnet.is
Nú eru skautabuxurnar komnar og pantanir óskast strax, þetta verður jafnvel síðasta pöntun fyrir jól og er þetta tilvalin jólagjöf í skautabarnsins.. Edilega pantið núna.
kv. Allý- allyha@simnet.is
Minni á kerta söluna sem við ætlum að fara í um mánaðarmótin....
Fámennt lið SA drengja laut í lægra haldi fyrir Bjarnar drengjum í gærkvöldi með 5 mörkum gegn 1. Engar fréttir hafa borist okkur af afrekum yngstu barnanna þ.e. 5., 6. og 7.flokks en þau lögðu á föstudaginn leið sína til Reykjavíkur á fyrsta barnamót vetrarins sem haldið er að þessu sinni í Laugardalnum. Þessi frétt birtist á SRvefnum í gær. Þau eru svo væntanleg heim í dag um kvöldmatarleitið. Við vonum að þau hafi skemmt sér hið besta og nánari komutími verður settur inn á vefinn þegar hann liggur fyrir.