Karfan er tóm.
Halló, nú er að koma að fjáröflun hjá listhlaupa krökkum og í tilefni þess að jólin nálgast þá hef ég hugsað mér að við gætum selt útikerti,, þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í að selja þau endilega sendið mér mail. Kertin eru 36 stk. í kassa og gott væri ef heill eða hálfur kassi er tekinn hvort sem það verða ein, tvær eða fleiri saman með kassa. Ágóðann á sú/ sá sem selur, þetta fer ekki í sameiginlegan pott. Ef þú vilt selja kerti sendu mér mail og láttu vita hversu mörg kert þú vilt fá. Þetta skulum við gera bara strax um mánaðarmótin þ.e. í byrjum nóvember.
kv. Allý - allyha@simnet.is
Miðvikudaginn 28. október ætlum við að gera okkur glaðan dag. Það verður þemadagur á ísnum hjá öllum hópum. Við viljum bjóða foreldrum/forráðamönnum og systkinum á æfingu með börnunum í D1 og D2 og að sjálfsögðu væri gaman að sjá sem flesta í búningum. Hægt er að fá lánaða skauta og hjálma ókeypis í höllinni. Hjá öðrum hópum verður venjuleg æfing en allir koma í búningum (sem hægt er að skauta í)
Vonumst til að sjá sem flesta.
Kær kveðja,
þjálfarar og stjórn