Íþróttamaður Akureyrar 2019

Íþróttabandalag Akureyrar og Frístundaráð Akureyrar bjóða bæjarbúum til athafnar í Hofi miðvikudaginn 15. janúar nk. þar sem lýst verður kjöri íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar. Dagskráin verður með breyttu sniði í ár þó við höldum fast í grunngildi hátíðarinnar. Í ár veitir Afrekssjóður Akureyrar átta afreksíþróttaefnum sérstaka viðurkenningu úr sjóðnum. Loks verður kjöri fimm efstu til íþróttakonu og íþróttakarls Akureyrar 2019 gerð góð skil með viðurkenningum við hátíðlega athöfn. Dagskrá hefst kl. 17:30.

Aldís Kara Bergsdóttir og Hafþór Andri Sigrúnarson Íþróttafólk SA 2019

Aldís Kara Bergsdóttir og Hafþór Andri Sigrúnarson hafa hlotið nafnbótina íþróttakona og íþróttakarl SA fyrir árið 2019. Aldís Kara var valin bæði skautakona listhlaupadeildar á dögunum sem og skautakona ársins hjá Skautasambandi Íslands. Hafþór Andri var valinn íshokkímaður íshokkídeildar SA fyrir árið 2019. Þau eru tilnefnd af Skautafélaginu til íþróttafólks Akureyrar fyrir árið 2019 en kjörið fer fram miðvikudaginn 15. janúar kl. 17.30 í Hofi en öllum bæjarbúum er boðið í kjörið.

Akureyrar- og bikarmót

Mótið hefst í kvöld.

ÍSLENSKA U-20 ÍSHOKKÍLANDSLIÐIÐ HEFUR KEPPNI Á HM Í DAG

Íshokkílandslið U-20 hefur keppni í dag á heimsmeistaramótinu í 3. deild sem fram fer í Sófíu í Búlgaríu. Ísland mætir heimaliði Búlgaríu í fyrsta leik sínum en leikurinn hefst kl. 18.30 og er sýndur í beinni útseningu hér.

Leikjum dagsins frestað!

SA - Reykjavík í Hertz-deild kvenna um helgina

SA-stúlkur taka á móti Reykjavík í tvíhöfða um helgina. Fyrri leikurinn er á laugardag kl. 16:45 og sá síðari á sunnudaginn klukkan 9:00. SA er með 16 stig eftir 7 leiki spilaða en Reykavík 5. Það er frítt inn á leikina. Mætum og styðjum stelpurnar til sigurs!

Leik Víkinga og Bjarnarins í Hertz-deild karla frestað

Leik SA Víkinga og Bjarnarins sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.

SA Víkingar - Björninn þriðjudag kl. 19.30

SA Víkingar taka á móti Birninum í toppslag Hertz-deildarinnar þriðjudaginn 7. janúar kl. 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri. Víkingar og Björninn berjast nú á toppi deildarinnar en bæði lið eru með 18 stig. SA Víkingar tefla fram gríðarlega ungu og efnilegu liði í vetur þar sem allir leikmenn liðsins eru uppaldir í félaginu og þurfa nú nauðsynlega á stuðningi stúkunnar að halda. Aðgangseyrir 1000 kr. en Víkingar ætla að bjóða öllum 18 ára og yngri frítt á leikinn á laugardag. Sjáumst í Skauthöllinni á laugardag!

Krulluæfing í kvöld

í kvöld verður æfing.

Áramótamótið

Áramótamótið verður haldið laugardaginn 28. desember