Eva María Karvelsdóttir íshokkíkona SA 2017

Eva María Karvelsdóttir hefur verið valin íshokkíkona Skautafélags Akureyrar árið 2017. Eva María er varnarmaður og hefur verið lykilleikmaður í liði Ásynja sem og kvennalandsliði Íslands síðastliðin ár. Árið 2017 var mjög gott hjá Evu en henni hlotnaðist sá heiður að vera valin besti varmarmaður heimsmeistaramóts kvenna sem fram fór á Akureyri síðastliðin vetur þar sem hún skoraði 2 mörk og lagði upp önnur 4 mörk í 5 leikjum. Eva María var á dögunum einnig valin íshokkíkona Íslands fyrir árið 2017.

Orri Blöndal íshokkímaður SA 2017

Orri Blöndal hefur verið valinn íshokkímaður SA árið 2017. Orri er 27 ára varnarmaður og er aðstoðarfyrirliði í liði SA Víkinga. Orri spilaði hefur spilað stórt hlutverk í liði SA Víkinga á árinu 2017 og er einn allra besti varnarmaður Íslands.

Akureyrar- og bikarmót 2017

Fjórðu umferð lokið.

Áramótamótið 2017

Laugardagur 30. desember kl: 17:30

SA Víkingar lögðu Esju í toppslagnum

SA Víkingar lögðu Esju á laugardaginn í toppslag Hertz-deildarinnar þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í framlengingu. SA Víkingar hefðu þurft sigur í venjulegum leiktíma til að ná toppsætinu af Esju og eru því einu stigi á eftir Esju í deildarkeppninni . SA Víkingar gætu þó enn náð toppsætinu fyrir jól þó svo að leikurinn hafi verið sá síðasti fyrir SA Víkinga fyrir jól. SR hefur nú þegar gefið leikinn sem átti að fara fram á þriðjudagskvöld og fá Víkingar því 3 stig. Esja mætir Birninum annað kvöld og fari svo að Björninn steli stigum af Esju ná SA Víkingar toppsætinu án þess að spila eins einkennilega og það kann að hljóma.

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði á Grand prix Bratislava 2017

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði á Grand Prix Bratislava 2017 í flokknum Advanced Novice

Marta María Jóhannsdóttir kjörin skautakona LSA árið 2017

Í dag að lokinni jólasýningu var Marta María Jóhannsdóttir krýnd sem skautakona LSA árið 2017

Viðburðarík helgi hjá Listhlaupadeild SA!

Marta María Jóhannsdóttir var kjörin skautakona ársins hjá Listhlaupadeildinni og fékk hún viðurkenninguna að lokinni jólasýningu deildarinnar. Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sigraði, fyrst Íslendinga, á ISU móti í listhlaupi. Hún tók þátt á Grand Prix móti í Bratislava um helgina og sigraði í flokknum advanced novice með 93,39 stig.

Ásynjur unnu verðskuldaðan sigur

Í gærkvöld áttust Ásynjur og Ynjur við í fimmta sinn í vetur. Fyrir viðureignina höfðu liðin unnið sinn leikin hvort, Ásynjur annan leikinn eftir framlengingu og vító. Þetta var jafnframt síðasti leikur liðanna fyrir jól.

Stórleikur Ásynja og Ynja í kvöld kl 19.30

Ásynjur taka í kvöld á móti Ynjum í toppslagnum í Hertz-deild kvenna í kvöld en leikurinn hefst kl 19.30 í Skautahöllinni á Akureyri. Ásynjur eru í efsta sæti deildarinnar einu stigi á undan Ynjum sem eiga þó leik til góða. Síðasti leikur liðanna var æsispennandi þar sem staðan var 8-8 að loknum venjulegum leiktíma en Ásynjur knúðu fram sigur í vítakeppni. Ekki missa af þessum stórleik, frítt inn og heitt á könnunni.