Myndir U18
Ég var að skoða mig um á netinu og rakst á síðu sem hafði myndir af U18 landsliðinu í Kína. Endilega skoðið þær...
Ég var að skoða mig um á netinu og rakst á síðu sem hafði myndir af U18 landsliðinu í Kína. Endilega skoðið þær...
Krakkar athugið!
Skautaskóli fyrir börn fædd árið 2003 og fyrr. Verður dagana 8, 10, 13, 15 og 17. Ágúst frá kl:15:00-16:30. Frábært tækifæri fyrir hressa krakka að leika sér á skautum að sumri til! Góð hreyfing, skemmtilegir leikir og góð þjálfun á skautum. Verð 5.500. krónur. Innritunarupplýsingar. Allý Halla allyha@simnet.is s:895-5804.
Hlökkum til að sjá sem flesta, stráka og stelpur.
Stjórn Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar.
Hér í neðst í valmyndinni til vinstri er tímatafla æfingabúða. Allir þátttakendur fá síðan tímatöfluna afhenta útprentaða 24. júlí þegar þeir mæta fyrsta daginn á ísinn.
Fystu 3 dagana, 24., 25. og 26. júlí verða stuttir dagar (sjá tímatöflu fyrir þessa 3 fyrstu daga í frétt hér fyrir neðan) og ekki nauðsynlegt að koma með nesti. Frá 27. júlí - 5. ágúst meðan börnin frá Nottingham verða í heimsókn hjá okkur verður boðið upp á léttan hádegisverð (súpu, jógúrt, skyr og brauð) að kostnaðarlausu en að sjálfsögðu er öllum frjálst að koma með nesti ef þeir kjósa það frekar. Frá 7. ágúst til 17. ágúst verður ekki boðið upp á hádegisverð og börn beðin um að koma með hollt og næringarríkt nesti.
Allir verða að muna að mæta a.m.k. 30 mínútum áður en æfingabúðirnar byrja hvern dag.
Munið að mæta ALLTAF í viðeigandi íþróttaklæðnaði á allar æfingar, með bæði föt til að vera á ís og af-ís, góða íþróttaskó, sippuband og vatnsbrúsa.
Mikilvægt er að fara alltaf eftir fyrirmælum þess sem þjálfar, bæði á ís og afís og vera kurteis og sýna íþróttamannslega framkomu í einu og öllu.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Helgu Margréti í e-mail helgamargretclarke@gmail.com
Á aðalfundi Skautafélags Akureyrar sem haldinn var 17. maí s.l. var kosin ný stjórn. Stjórnina skipa eftirtaldir aðilar;
Ólafur Hreinsson – formaður
Ólöf Sigurðardóttir – varaformaður
Dröfn Áslaugsdóttir – gjaldkeri
Sigurður Sigurðsson – ritari
Davíð Valsson – meðstjórnandi
Brynjólfur Magnússon – meðstjórnandi
Helga Margrét Clarke - meðstjórnandi
Stjórnin hefur nú hafið störf því nú styttist óðum í upphaf nýs tímabils en æfingar munu hefjast hjá Listhlaupadeild þann 24. júlí n.k.