Aðalfundur félagsins - ný stjórn

Þann 14. maí síðastliðinn var haldinn aðalfundur Skautafélags Akureyrar í skautahöllinni.  Fundurinn var vel sóttur og greinilegt að félagsmenn láta sig málefni félagsins sig miklu varða.  Í mjög stuttri samantekt þá fór fundurinn vel fram, skýrslur voru kynntar og starfsemi félagsins yfirfarin.  Ánægjulegast var að sjá að félagið og deildir þess er skuldlaust, sem teljast verður góður árangur nú á þessum síðustu og verstu.  Starfsemi deildanna er í miklum blóma, drifkraftur og bjartsýni í mannskapnum fyrir komandi tímabil.

Ný stjórn var kjörin á fundinum.  Úr stjórn gengu Ólafur Hreinsson fráfarandi formaður og Ásta Jónsdóttir fulltrúi ungu kynslóðarinnar.  Inn í stjórn komu Reynir Sigurðsson og Jón Rögnvaldsson auk þess sem Gunnar Darri Sigurðsson verður fulltrúi ungu kynslóðarinnar.

Stjórn Krulludeildar skiptir með sér verkum

Stjórn Krulludeildar hefur haldið sinn fyrsta fund eftir aðalfund og skipt með sér verkum.

Sumaræfingar í júlí hjá Helgu Margréti og Audrey Freyju

Öllum iðkendum LSA stendur til boða að vera með í sumaræfingum í júlí með Helgu Margréti yfirþjálfara og Audrey Freyju systur hennar. Æfingarnar verða í svipuðum stíl og æfingarnar hjá Hóffu voru núna í maí, skokk, stöðvaþjálfun, stökk afís, teygjur o.s.frv. Við munum að sjálfsögðu gera ýmislegt skemmtilegt líka t.d. hjóla Eyjafjarðarhringinn, fara í Kjarnaskóg og sund. Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt bæði til að halda sér í formi, auka liðleika og hafa gaman. Búið er að opna Facebook síðu þar sem afístímarnir verða auglýstir sérstaklega. Þeir sem ekki eru með Facebook geta nálgast upplýsingar hér á heimasíðunni. Endilega fylgjist vel með :) Hér er linkur á Facebook síðuna.

Skautar til sölu

Til sölu eru eru Edea skautar fimm stjörnu númer 230. Upplýsingar í síma 896-8436. kv Dröfn

Far til RVK í æfingabúðirnar

Okkur vantar far fyrir Hrafnhildi Láru í æfingabúðirnar í RVK hún byrjar í viku 2 og verður því að vera komin suður fyrir 8. júní, ef einhver veit um far, þá væri það alveg brilliant! kv. Hilda Jana s 8647415

Þrekæfingar hjá Hóffu!

Þrekæfingarnar hjá mér verða því miður ekki fleiri í vor vegna annara verkefna.

En endilega verið dugleg að fara eftir planinu ykkar og endilega skrifiði æfingadagbók, það er gaman að fylgjast með hvað við erum dugleg. :-)

Fylgist líka með heimasíðunni hvenær Helga byrjar með sínar afísæfingar.

Takk fyrir skemmtilegar æfingar

kv. Hóffa

Iðkendur á leið í æfingabúðir ÍSS í júní

Núna á mánudaginn byrjar loksins fyrsta vika æfingabúða ÍSS. Inn á síðu skautasambandsins er að finna allar upplýsingar varðandi 1. viku búðanna, dagskrá, hópaskiptingu og aðrar upplýsingar. Hinar vikurnar koma svo koll af kolli inn á heimasíðuna og viljum við biðja fólk um að fylgjast vel með þeirri síðu. Helga Margrét þjálfari sendi tölvupóst með tékklista og smá upplýsingum á alla sem taka þátt, ef einhver kannast ekki við að hafa fengið póstinn þá vinsamlegast sendið póst um það á helgamargretclarke@gmail.com, það er mikilvægt að allir lesi þetta bréf vel yfir. Sjáumst í Reykjavík, kv. Helga Margrét :)

Þrekæfing hjá Hóffu fellur niður

Þrekæfingin hjá Hóffu sem á að vera á morgun þriðjudag (26.maí) fellur niður. :-(

kv. Hóffa

ENGIN KLEINUSTEIKING

Kleinusteikingin fellur niður um helgina. Bakarinn sem við fáum degið hjá er upptekinn og verðum við því að fresta þessu um óákveðinn tíma.

 

kveðja

Stjórnin

Mögulegt fyrir iðkendur í sumarvinnu að taka þátt í æfingabúðum LSA

Stjórn LSA og Helga Margrét yfirþjálfari hafa fengið nokkrar fyrirspurnir varðandi "eldri" iðkendur sem áhuga hafa á að taka þátt í æfingabúðunum okkar í ágúst en eru að vinna á sama tíma. Rætt hefur verið um möguleikann á að fá að nýta þá tíma sem iðkendur komast á og borga hlutfallslega í samræmi við það. Sumir eru að vinna seinni partinn á daginn og gætu þá nýtt æfingar fyrir hádegi og svo öfugt. Að sjálfsögðu viljum við að sem flestir sem áhuga hafa geti tekið þátt og gerum það sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við alla. Við viljum biðja þá sem áhuga hafa að senda póst á skautar@gmail.com með nánari útskýringum á vinnutíma iðkanda og hvaða tímabil hann vill nýta, við svörum svo hverju erindi fyrir sig.