SA Víkingar náðu vopnum sínum gegn Esju í seinna skiptið

SA Víkingar sigruðu Esju í gærkvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir vítakeppni. SA Víkingar halda því toppsætinu í Hertz deildinni þegar einunngis tvær umferðir eru óspilaðar og eru aðeins einum sigri frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Esja er í dauðafæri á því að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í sögu félagsins en aðeins kraftaverk hjá Birninum getur komið í veg fyrir það.

Myndband af leik gærdagsins Vikingar vs Esja

Leiknum var streymt á SA TV eins og venjulega !

SA Víkingar vs Esja laugardag kl 17.30

SA Víkingar taka á móti Esju í annað sinn í þessari viku laugardaginn 6. febrúar kl 17.30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar verma toppsætið en Esja getur jafnað SA að stigum með sigri. Síðasti leikur þessarar liða var gríðarlega spennandi og engin ástæða til þess að ætla annað en að þessi toppslagur verði hin besta skemmtun.

Gimli mótið 2016

Tvær umferðir eftir.

Fréttir af framkvæmdum

Nú er útboðsferlinu lokið á þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í Skautahöllinni en samið verður við verktaka á næstu dögum. Það er því nánast öruggt að framkvæmdirnar muni hefjast eigi síður en 1. mars og starfsemi í húsinu verður því hætt í lok febrúar.

Úrslit úr öðru innanfélagsmóti vetrarmótaraðarinnar

Það var mikil spenna þegar annað mótið í vetrarmótaröðinni fór fram síðastliðna helgi. Leikirnir voru sérlega skemmtilegir og spennandi að þessu sinni og keppendurnir voru sér og öðrum til sóma þar sem þeir sýndu auðmýkt og virðingu hvort sem þeirra lið unnu eða töpuðu. Hér að neðan má sjá úrslitin úr leikjunum:

Gimli mótið 2016

Úrslit í 4. umferð, frestaður leikur og heimsókn

Esja náði mikilvægum stigum af Víkingum í gærkvöld.

Esja sigraði Víkinga í Hertz deildinni í gærkvöld en lokatölur urðu 4-3 Esju í vil. Esja náði þar með gríðarlega mikilvægum stigum á leið sinni að úrslitakeppninni en þurfa nú aðeins tvö stig til viðbótar til þess að tryggja sér sætið. Liðin mætast aftur á Akureyri næsta laugardag en Esja getur með sigri náð Víkingum að stigum í deildinni.

Myndir úr síðasta leik SA Víkinga

Ljósmyndararnir okkar þeir Sigurgeir Haraldsson og Elvar Pálsson eru duglegir að setja inn myndir frá leikjum á heimasíðuna en þær má alltaf finna hér vinstra megin í valmyndinni undir myndir. Hér eru myndirnar úr leiknum gegn SR frá Sigurgeiri og Hér eru myndirnar frá Elvari.

SA Víkingar taka á móti Esju þriðjudag kl 19.30

SA Víkingar mæta Esju í Hertz deildinni þriðjudaginn 2. febrúar kl 19.30 í Skautahöllinni á Akureyri. Um sannkallaðan toppslag er að ræða en liðin bítast nú um efsta sætið í deildinni en aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni.