15.10.2013
Þriðja umferð Akureyrarmótsins í krullu hófst í gær með leik Mammúta og Ice Hunt, en leik Garpa og Freyja var frestað.
15.10.2013
Annað kvöld, miðvikudagskvöldið 16. október, verður engin krulluæfing þar sem við skiptum á laugardagstímanum við mfl. karla í hokkí. Í staðinn ætlum við að hittast í Keilunni, spjalla og taka leik... eða eitthvað.
15.10.2013
Í kvöld kl. 19.30 mætast Jötnar og Húnar á Íslandsmótinu í íshokkí karla í Skautahöllinni á Akureyri.
14.10.2013
Jötnar mættu Fálkum á Íslandsmótinu í íshokkí karla sl. laugardag og máttu játa sig sigraða, 6-1.
14.10.2013
Í kvöld, mánudagskvöldið 14. október, fer fram einn leikur í 3. umferð Akureyrarmótsins í krullu.
10.10.2013
Sarah Smiley er nú farin í fæðingarorlof, en nýir þjálfarar hafa bæst í hópinn hjá hokkídeildinni. Hér eru upplýsingar um þjálfara yngri flokkanna í íshokkí.
10.10.2013
Krullulandsliðinu gengur erfiðlega í C-keppni Evrópumótsins, en liðið er án sigurs eftir fimm umferðir.
10.10.2013
Nýliðamót Krulludeildar Skautafélags Akureyrar verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri laugardaginn 12. október og hefst kl. 18.00. Mæting er kl. 17.30.
Þátttökugjald er 500 krónur á mann.
10.10.2013
Fjölmargir leikmenn frá SA eru á leið á alþjóðlega hokkímótið Iceland International Ice Hockey Cup sem fram fer í Egilshöllinni um helgina. Jötnar fara í Laugardalinn á laugardaginn.
10.10.2013
Um síðastliðna helgi kepptu krakkarnir í 4., 5., 6. og 7. flokki í innanfélagsmóti og buðu foreldrum og öðrum upp á skemmtilega og spennandi hokkíleiki.