SA vann Björninn í mfl. karla
SA lagði björninn nokkuð örugglega í leik dagsins. Lokatölur 11:4
SA lagði björninn nokkuð örugglega í leik dagsins. Lokatölur 11:4
Jólafrí og litlu jól
Kæru foreldrar og krakkar
Nú kemur að jólafríi og viljum við byrja jólafríið á skemmtun fyrir krakkana. Síðustu æfingar verða sunnudaginn 18. desember samkvæmt æfingatöflu. Þriðjudaginn 20. desember verða svo litlu jólin fyrir 7.6.5.4 og 3. flokk frá kl. 17:00 -19:00. Farið verður í alls konar leiki og þrautir og verða verðlaun í boði.
Viljum við hvetja foreldra að koma og fylgjast með. Eftir 20. desember fara þessir flokkar í jólafrí og mæta svo allir krakkarnir hressir eftir jólin á æfingu fimmtudaginn 5. janúar 2006.
Kveðja Hokkístjórnin
Kæru iðkendur og foreldrar! Nú fer að styttast í jólasýningu hjá okkur. Í ár sýna krakkarnir okkar
Þegar trölli stal jólunum
sunnudaginn 18. desember kl. 16:30
Aðgangur 500 kr fyrir fullorðna
frítt fyrir 12 ára og yngri
Ekki er tekið við greiðslukortum
Allir iðkendur fá hlutverk og hvetjum við ykkur til þess að mæta ásamt öðrum gestum,líta upp frá amstri jólanna og njóta stundarinnar með börnunum ykkar. Foreldrafélagið mun standa fyrir kaffisölu í hléi á sýningunni.
Hér eru upplýsingar um það hvernig hver flokkur á að vera klæddur.
3. flokkur S: Þau eru krakkar að leika sér með jólagjafir. Þau eiga að vera í jólalegum fötum, mega koma í skautakjólum ef þær vilja.
3. flokkur H: Þau eru hreindýr og eiga að koma í fallegum jólalegum fötum eða skautakjólum, það fást hreindýrahorn/hreindýraspangir í hár í Ice in a bucket, væri frábært að vera með það í hárinu!
4. flokkur a og b (hóparnir þeirra Helgu, Audrey, Heiðu og Berglindar): Þau eru krakkar að undirbúa jólin, eiga að vera í fallegum jólafötum.
4. flokkur c (hópurinn þeirra Eriku og Ástu): Þau eru snjókorn, þau fá búningana hjá listhlaupadeildinni, eiga bara að mæta í venjulegum æfingafötum!
Jólafrí er svo að lokinni sýningu og verður nánar auglýst síðar hvenær æfingar hefjast að nýju
Upplýsingar er hægt að nálgast hjá þjálfurum og stjórn listhlaupadeildar.
Oldboys mót ný tafla Hokkíleikirnir eru 2x 20 mín. og er klukkan ekki stoppuð.