Hefðbundinn frídagur keppenda

Keppendur á Kristalsmóti fá hefðbundinn frídag eftir keppni í dag.

Akureyrarmótið í krullu - undanúrslit og leikið um sæti

Í kvöld fara fram undanúrslit á Akureyrarmótinu auk þess sem leikið verður um sæti 5-8 á mótinu. Fyrir leikina verður dregið til undanúrslita í Bikarmótinu sem fram fara á miðvikudagskvöld.

KOMUTÍMI FRÁ REYKJAVÍK

 Heimkoma af Kristalsmóti í R.vík, áætlaður tími er kl.17:45 . Allt gekk vel og við óskum þeim öllum til hamingju.

Úrslit Gærdagsins

Meistaraflokkur tapaði fyrir SR 5 - 7 og 3.flokkur vann SR 9 - 6.

Fararstjórar á Kristalsmót Bjarnarins

Krakkarnir fóru af stað kl. 17:20 í dag, fararstjórar eru Jóhanna s- 6632879 og Sigrún s- 8645356, foreldrar geta hringt í þær og fylgst með hópnum. Gist verður í Capital Inn Suðurhlíð 35.

Ferð 5-6-7 flokks til Reykjavíkur!

Kominn er ný dagsetning á mót 5-6-7 flokks til Reykjavíkur 24 -25 október.

Mondor skautabuxur

Halló, Sara Samúelsd. tapaði Mondor skautabuxunum sínum í höllinni í gær og langar mig að byðja ykkur að ath. hvort þær hafi farið óvart í ykkar skautatösku og ef svo er þá endilega hringið í mömmu hennar í síma 6608414.

Sýningarhópurinn kemur fram í fyrsta sinn

Á laugardagskvöldið 17. október nk. kl. 17:30 verður fyrsti heimaleikurinn í hokkí milli SA og SR. Sýningarhópurinn okkar mun koma fram formlega í fyrsta sinn í fyrra hléi og sýna fyrsta dans tímabilsins. Hvetjum alla til að koma og horfa á stelpurnar okkar og auðvitað leikinn líka :)

Fjarnám ÍSÍ þjálfaramenntun

Haustannarfjarnám 1. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst 2. nóv. nk.  Námið tekur 8 vikur og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar.Námið jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu og er metið sem slíkt.Fjarnámið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa. Nemendur skila verkefni í hverri viku auk lokaverkefnis og krossaprófa.  Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.Skráning er til 29. október á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000.  Þátttökugjald er aðeins kr. 3.500.-Allar frekari uppl. veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 og á vidar@isi.is

Bikarmótið - 8 liða úrslit

Bikarmótið hófst í gær. Bikarmeistararnir og Íslandsmeistararnir slegnir út.