Sala á pappír.

Framvegis verður einungis hægt að fá pappír afhenta hjá mér fyrir keppnisferðir.  Fyrir ferðina suður 27. febrúar þurfa þeir sem vilja panta pappír hjá mér fyrir 15. febrúar og reyni ég að afhenta hann ca. 18. febrúar.  ATH. pappírinn hefur hækkað töluvert.

Allý  s- 8955804,  allyha@simnet.is

 

Þeir sem enn eiga eftir að borga fyrir pappír sem tekinn var fyrir áramót eru vinsamlegast beðnir um að gera það strax svo að við sleppum við aðrar innheimtuaðgerðir.. Þegar lagt er inn er gott að senda staðfestingu til Kristínar gjaldkera   artkt.@internet.is

Janúarmótið, undanúrslit leikin í kvöld.

Öll liðin léku í undanúrslitum í kvöld. Mótið styrkt af veitingastaðnum Strikinu.

POWER SKATING

Next Monday morning power skating classes will be the 2nd and 16th of February.

Leikir helgarinnar

SA spilaði 3 leiki þessa helgi við Björninn í Egilshöll. Fyrsti leikurinn var á föstudagskvöldið og þá var fyrri leikur meistaraflokkanna og þann leik vann SA 3-4 seinni leikurinn á laugardagskvöldinu endaði með sigri SA 3-6.  Á laugardagskvöldinu eftir meistaraflokksleikinn léku 3.flokkar liðanna og þeim leik lauk í vítakeppni eftir spennandi leik með sigri Bjarnarins 6-5.     Góóóóðir SA !!!!    Fyrir þá sem hafa gaman af statistikkinni þá er vert að skoða HÉR. þetta er það sem kemur til með að verða þegar DANSKA KERFIÐ verður komið á fullt, sem verður fljótlega !!!!

3.flokkur í rútu á morgun

3. Flokkur. Á morgun laugardag er mæting kl. 13,00 og brottför kl. 13,30 stundvíslega.

Riðlakeppni lokið í janúarmótinu.

Síðasti leikur riðlakeppninnar var ekki leikinn. Nánari upplýsingar um úrslit riðlakeppninnar og næstu leiki.

Námskeið fyrir fullorðna á skautum

Skautanámskeið fyrir fullorðna byrjendur verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri, dagana 25. janúar, 1.febrúar, 15. febrúar og 22. febrúar kl:16:00-16:45. Námskeiðsgjald: 3.000.-

Lán á skautum og hjálmum innifalið í verði. Tilvalið fyrir foreldra, börnin geta leikið sér á almenningstíma á meðan foreldrarnir fá grunnæfingu á afmörkuðusvæði, með reyndum þjálfara.

Skráning og nánari upplýsingar: hildajana@gmail.com

Kæru iðkendur og foreldrar í 3.-7. hóp

Hér eru nokkur atriði sem þjálfarar vilja koma á framfæri:

Við viljum minna á afístímana, teygjur og skokk sem eru á tímatöflunum hjá 3.-7. hóp. Það hefur verið frekar slæm mæting hjá mörgum iðkendum og viljum við reyna að snúa því við. Þetta eru mjög mikilvægir tímar og líka skemmtilegir. Þjálfarar fylgjast vel með því hverjir eru að mæta og hverjir ekki. Þessir tímar eru nauðsynlegir fyrir alla iðkendurna (afístímatöflu til upprifjunar er að finna undir "lesa meira").

Klæðnaður á æfingum skiptir miklu máli. Klæðast skal þröngum buxum eða pilsi/kjól, þröngri hettulausri peysu eða langermabol, hár skal alltaf vera tekið vel frá andliti, alls ekki flegnir bolir eða mjög síðir bolir, treflar, klútar eða "stórir" skartgripir eða annað sem getur flækst, muna að koma í góðum íþróttaskóm á æfingar.

Hvetjum iðk til að fara snemma að sofa fyrir morgunæfingar bæði á fimmtudögum og sunnudögum.

Iðkendur þurfa að borða eitthvað létt ca. 1 ½ klukkustund áður en æfingar hefjast alla daga, nema á fimmtudagsmorgnum þá er í lagi að borða eitthvað lítið um leið og vaknað er, morgunæfingarnar þennan dag eru alltaf léttar.

Borið hefur á því að hlutir hverfi úr töskum, biðjum um að iðkendur komi ekki með verðmæti á æfingar og láti töskur og eigur annarra vera.

Minnum á opnu ístímana á föstudögum og sunnudögum.

Bráðlega verður auglýstur fundur fyrir iðkendur þar sem farið verður yfir gildi upphitunar, teygjuæfinga og afístíma, verður auglýst á heimasíðu og mikilvægt að allir mæti.

Hvetjum fólk til að fylgjast alltaf vel með heimasíðunni og mótaskrá.

 

Morguntími í fyrramálið

Nú hefjast aftur morguntímar á fimmtudagsmorgnum. Í fyrramálið, fimmtudagsmorguninn 22. janúar skulu þeir sem keppa í eftirfarandi keppnisflokkum mæta í morguntíma milli 6:15 og 7:15: Novice, 15 ára og eldri B, 12 ára og yngri A og 10 ára og yngri A. Næsta fimmtudag mæta svo 14 ára og yngri B, 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B og 8 ára og yngri B.

Minningarmót um Magnús Finnsson