Karfan er tóm.
Í dag milli kl. 16:40 og 17:20 ætla ég að vera með skautatöskur, skautabuxur og skautahlífar í skautahöllinni uppi í fundarherbergi.
Þeir sem eiga eftir að sækja kertin eru beðnir að gera það fyrir helgina. Er heima eftir kl. 18 í dag en svo eftir kl.16:30 á morgunn.
Allý / allyha@simnet.is - 8955804
Strax á eftir kvennaleiknum í gærkvöldi áttust við Jötnar og Víkingar. Þrátt fyrir að flestir gerðu ráð fyrir sigri Víkinganna þá var eitthvað allt annað uppi á teningnum í gær því Jötnarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikinn með 3 mörkum gegn 2. Víkingar mættu með rétt rúmar tvær línur en Jötnar voru aðeins fleiri. Eftir síðustu tilfærslu voru Jón Gísla, Stefán Hrafnsson og Björn Már Jakobsson færðir í Jötna en það voru einu einu leikmenn Jötna úr Íslandsmeistraliði síðasta vors. Víkingar voru því full sigurvissir og þrátt fyrir ágæta spretti tókst þeim ekki að koma pekkinum inn fyrr enn á lokamínútum leiksins.
Í gærkvöldi mættust heimaliðin Ynjur og Valkyrjur. Valkyrjur hófu leikinn af miklum krafti og skoruðu fyrsta markið eftir aðeins 17 sek. leik og eftir það var ekki aftur snúið. Loturnar fóru 6 - 1, 0 - 0 og 3 - 0. Þrátt fyrir nokkra yfirburði Valkyrja var leikurinn líflegur og mikið af marktækifærum.
Mörk og stoðsendingar Valkyrja:
Birna Baldursdóttir 3/0, Guðrún Blöndal 2/1, Hrönn Kristjánsdóttir 2/0, Sara Smiley 1/0, Guðrún Arngrímsdóttir 1/1, Jónína Guðbjartsdóttir 0/1, Hrund Torlacius 0/1, Leena Kaisa Viitanen 0/1.
Mörk og stoðsendingar Ynja:
Thelma Guðmundsdóttir 1/0, Silvía Rán Björgvinsdóttir 0/1.
Nú gefst öllum iðkendum LSA kostur á að taka þátt í fjáröflun með því að selja jólapappír. Það eru tvær pakkningar í boði.
Pakkn. nr 1 inniheldur 5 rúllur jólapappír 2 mtr., hnotupakkn. merkispjöld og límband. Kostar 1000,- og má selja á 2000. Iðkandi fær þá 1000 í sinn vasa.
Pakkn. nr. 2 inniheldur 3 rúllur jólapappír 5 mtr, 1 rúllu 2 mtr, hnotupakkn. merkispjöld og límband. Kostar 1400,- má selja á 2500,- iðkandi fær 1100 í sinn vasa.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari fjáröflun eru vinsamlegast beðnir að láta vita fyrir fimmtudag til rakelhb@simnet.is s. 662 5260 hversu margar pakkn. þeir hafa hug á að taka. Ath. það þarf að borga fyrir pakkn. um leið og þær eru teknar. Þetta ætti að verða tilbúið til afhendingar á föstudag. Ég fékk ekkert mjög margar pakkn. svo endilega bregðist fljótt við svo ég geti þá reynt að útvega meira ef þetta reynist ekki nóg. Ætlunin er að pakka þessu á fimmtudagskvöldið kl. 20 í Brekkuskóla (norðurenda í gamla Gaggahúsinu) ef einhverjir foreldrar eru tilbúnir til að aðstoða okkur væri það mjög gott. Gott væri að fá að vita ef einhverjir geta aðstoðað. Þetta ætti ekki að taka nema 1 - 1 1/2 klst.