Garpar Íslandsmeistarar í krullu 2013

Garpar eru Íslandsmeistarar í krullu 2013 eftir sigur á Skyttunum í úrslitaleik. Mammútar unnu bronsið. Myndir komnar inn.

Ice Cup krullumótið - 16 lið skráð

Næstu viku, frá sunnudagskvöldi til laugardagskvölds, verður Skautahöllin undirlögð vegna undirbúnings og keppni á alþjóðlega Ice Cup krullumótinu. Æfingar annarra deilda hefjast síðan skv. maí æfingatöflunni sunnudaginn 5. maí, en mótið er lokapunktur á krulluvertíðinni.

Innanfélagsmót og lokahóf um helgina

Laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. apríl verður innanfélagsmót hjá 3.-7. flokki og lokahóf hjá 5.-7. flokki. Engar æfingar á sumardaginn fyrsta.

Íslandsmótið í krullu: Úrslitaleikir í kvöld

Í kvöld fara fram úrslitaleikir Íslandsmótsins í krullu. Leikirnir hefjast um kl. 20.30.

Miklar framfarir í yngstu flokkunum (með myndum)

Um liðna helgi kepptu um 40 krakkar úr 5., 6. Og 7. Flokki SA á Barnamóti SR og stóðu sig með prýði. Framundan er síðasta innanfélagsmót vetrarins, lokahóf og svo Vormótið í maí.

Gleðipinnar í Vesturvíking

Þeir Andri Freyr Magnússon, Fannar Jens Ragnarsson og Guðmundur Karl Ólafsson kepptu á krullumóti í New Jersey á dögunum.

Silvía Rán og Sunna til Svíþjóðar

Tvær ungar og efnilegar hokkístelpur, þær Silvía Rán Björgvinsdóttir og Sunna Björgvinsdóttir, héldu í gær til Svíþjóðar til að spila íshokkí.

Breyting á æfingu Old Boys

Ákveðið hefur verið að Old Boys tíminn á miðvikudagskvöldið 24. apríl falli niður vegna úrslitaleikja á Íslandsmótinu í krullu. Í staðinn geta þeir sem áhuga hafa mætt í hokkí á fimmtudagskvöldið kl. 21.00, en á þeim tíma voru æfingar mfl. karla.

Bronsið í höfn, besti árangur Íslands

Íslendingar unnu til bronsverðlauna í A-riðli 2. deildar Heimsmeistaramótsins í íshokkí með sigri á Serbum í lokaleiknum í dag, 5-1. Andri Már Mikaelsson var valinn maður leiksins í íslenska liðinu. Ingvar Þór Jónsson lék sinn 70. landsleik.

Fimm lið frá SA á Barnamóti SR

Um helgina fer fram Barnamót SR í íshokkí þar sem eigast við krakkar í 5., 6. og 7. flokki frá Skautafélögunum þremur. SA er með fimm lið á mótinu. Helgarmót 3. flokks fellur niður þrátt fyrir færð.