Íslandsmótið í krullu 2017

Fjórða umferð mánudag 27. mars

SA Víkingar - Esja 2. leikur í úrslitakeppni karla í íshokkí í kvöld kl 19.30

SA Víkingar mæta Esju í kvöld í öðrum leik úrslitakeppninnar í íshokkí, leikurinn hefst kl 19.30. Esja vann fyrsta leikinn í framlengingu og leiðir einvígið 1-0. Mætum í rauðu og fyllum stúkuna og styðjum okkar menn til sigurs. Miðaverð 1500 kr.

Íslandsmótið í krullu 2017

Úrslit þriðju umferðar.

Íslandsmótið í krullu 2017

Þriðja umferðin fer fram í kvöld.

HM kvenna í krullu

HM kvennar stendur yfir frá 18 - 26 mars

Íslandsmótið í krullu 2017

Úrslit annarar umferðar.

Lokað í dag laugardag vegna mótahalds !

Lokað í dag laugardag vegna mótahalds !

Vetrarmót ÍSS verður haldið á Akureyri um helgina

Vetrarmót ÍSS verður haldið á Akureyri um helgina. LSA á 18 keppendur skráða til leiks.

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir heldur áfram að gera það gott á mótum í Evrópu

Ísold Fönn tók þátt í Coupe Meyrioise Internationale skautakeppninni í Genf í síðustu viku og hafnaði þar í öðru sæti.

SA og SA í úrslitum kvenna

Úrslitin í meistaraflokki kvenna hófust í kvöld þegar liðin okkar, Ynjur og Ásynjur mættust í flottum hokkíleik hér á heimavelli beggja liða sem lauk með sigri Ynja, 6 - 4. Þessi árangur félagsins að eiga bæði lið í úrslitum er einstakur. Bæði lið báru höfuð og herðar yfir sunnanliðin í vetur og var það sérstaklega sætt þar sem engar lánsreglur voru í gildi og teflt var fram tveimur algerlega aðskildum liðum. Það sýnir mátt félagsins og megin að geta teflt fram tveimur liðum í þessum styrkleikaflokki og sýnir hve mikil uppbyggingin í kvennahokkí hefur raunverulega verið á síðustu árum, með hana Söruh Smiley, að öðrum ólöstuðum, í fararbroddi. Ásynjur hafa verið sterkari í vetur og tryggðu sér deildarmeistaratitilinn á dögum og þar með heimaleikjaréttinn (jeiii). Ynjur hafa hins vegar farið vaxandi og sýndu í kvöld hvers þær eru megnugar. Næsti leikur verður á þriðjudaginn kl. 19:30 og þá geta Ynjurnar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en það er næsta víst að Ásynjur munu ekki gefa hann eftir svo auðveldlega. Hvernig sem allt fer, þá verður um háspennuleik að ræða.